mið 02. júní 2021 20:56
Victor Pálsson
Alexander-Arnold fór meiddur af velli - EM í hættu?
Mynd: Getty Images
Trent Alexander-Arnold meiddist í kvöld er England spilaði við Austurríki í æfingaleik í Middlesbrough.

Alexander-Arnold spilaði 90 mínútur í 1-0 sigri Englands en hann var í byrjunarliði Gareth Southgate.

Í blálok leiksins þá þurfti bakvörðurinn að yfirgefa völlinn og í fyrstu sýn líta meiðslin ekki vel út.

Talað er um að Liverpool-maðurinn gæti misst af EM í sumar en mótið hefst þann 11. júní.

Enn er óljóst hversu alvarleg meiðslin eru en Alexander-Arnold gat ekki klárað leikinn og fann töluvert til.


Athugasemdir
banner
banner
banner