Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 02. júní 2021 14:45
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Fundinn sekur fyrir að hafa hótað að myrða Maupay
Mynd: Getty Images
Maður frá Singapúr hefur verið fundinn sekur fyrir að hafa sent morðhótanir til Neal Maupay leikmanns Brighton.

Nítján ára karlmaður senti Maupay skilaboðin eftir að Brighton vann Arsenal í júní á síðasta ári.

Derek Ng De Ren heitir maðurinn og þarf hann að greiða 10 þúsund pund í sekt eða sitja í fangelsi í tvö ár. Hann sendi fjölskyldu Maupay einnig hótanir til fjölskyldu Maupay á Instagram.

Þetta er í fyrsta sinn sem einhver utan Bretlands er dæmdur sekur fyrir hótanir í garð leikmanns í úrvalsdeildinni.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner