Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   mið 02. júní 2021 23:41
Victor Pálsson
Ítalía: Ronaldo skaut Padova í undanúrslitin
Emil spilaði ekki.
Emil spilaði ekki.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Emil Hallfreðsson kom ekki við sögu hjá liði Padova í kvöld sem spilaði við Renate í ítölsku C-deildinni.

Um var að ræða leik í 8-liða úrslitum liða sem eru að reyna að tryggja sæti sitt í B-deildinni á næstu leiktíð.

Padova vann fyrri leikinn með þremur mörkum gegn einu lenti þremur mörkum undir á heimavelli í dag.

Miðjumaður að nafni Ronaldo sá um að tryggja Padova áfram í undanúrslit en hann skoraði eina mark Padova á 82. mínútu. Það mark kom Padova áfram en liðið er í efri styrkleikaflokki.

Nú taka við tveir leikir við Avellino í undanúrslitum en leikið er 6. júní og þann 9.

Hinn undanúrslitaleikurinn er á milli Alessandria og AlbinoLeffe og koma þessi fjögur lið til greina í úrslitaleikinn.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner