mið 02. júní 2021 22:00
Victor Pálsson
Lukaku staðfestir að hann verði áfram
Mynd: Getty Images
Romelu Lukaku er ekki á förum frá Inter Milan í sumar eins og margir miðlar hafa talað um síðustu vikur.

Lukaku var valinn besti leikmaður Serie A á tímabilinu en hann vann deildina undir Antonio Conte.

Simone Inzaghi er nýr knattspyrnustjóri Inter en hann hafði náð ansi góðum árangri með Lazio.

Lukaku hefur mikið verið orðaður við sitt fyrrum félag Chelsea en er ekki að kveðja þetta sumarið.

„Ég verð áfram hjá Inter. Ég er nú þegar búinnn að ræða við nýja stjórann, Inzaghi," sagði Lukaku.

„Kannski ætti ég ekki að greina frá því strax en við áttum mjög jákvætt samtal."
Athugasemdir
banner
banner