Manchester United, Arsenal, Tottenham og Inter Milan berjast um krafta tyrkneska landsliðsmannsins Zeki Celik. Þetta herma heimildir Evening Standard.
Celik er leikmaður Lille og lék 35 deildarleiki þegar liðið vann frönsku deildina í vetur. Hann er 24 ára hægri bakvörður sem talinn er kosta 13 milljónir punda.
Celik er leikmaður Lille og lék 35 deildarleiki þegar liðið vann frönsku deildina í vetur. Hann er 24 ára hægri bakvörður sem talinn er kosta 13 milljónir punda.
Celik á tvö ár eftir af samningi sínum við Lille og gæti yfirgefið félagið í sumar.
Celik gæti leyst Achraf Hakimi af hjá Inter en Hakimi hefur verið orðaður frá Inter. Arsenal er í leit að hægri bakverði og Ole Gunnar Solksjær, stjóri Man Utd, vill fá inn hægri bakvörð í samkeppni við Aaron Wan-Bissaka.
Athugasemdir