Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 02. júní 2021 15:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Salah ekki tilnefndur sem leikmaður ársins - 4 frá City
Salah var næstmarkahæstur
Salah var næstmarkahæstur
Mynd: EPA
Sex leikmenn koma til greina sem leikmaður ársins í ensku úrvalsdeildinni. Leikmenn í deildinni kjósa þann sem þeim þykir hafa skarað fram úr á liðinni leiktíð.

Fjórir leikmenn hjá meisturum Manchester City koma til greina og þeir Bruno Fernandes hjá Manchester United og Harry Kane hjá Tottenham. Kane var markahæsti leikmaður deildarinnar. Leikmenn City sem koma til greina eru þeir Ruben Dias, Ilkay Gundogan, Kevin de Bruyne og Phil Foden.

Mo Salah, leikmaður Liverpool, var næstmarkahæstur í deildinni en hann kemur ekki til greina í ár.

Trent Alexander-Arnold, samherji Liverpool, kemur til greina sem besti ungi leikmaður ársins fjórða árið í röð!

Mason Mount, Declan Rice, Bukayo Saka, Phil Foden og Mason Greenwood koma einnig til greina í þeim flokki.
Athugasemdir
banner
banner
banner