Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 02. júní 2021 19:47
Victor Pálsson
Sjáðu vítaspyrnuklúður Benzema - Ward sá við honum
Mynd: Getty Images
Karim Benzema fékk gullið tækifæri til að koma Frakklandi yfir gegn Wales í kvöld en þessi lið eigast við í æfingaleik.

Bæði lið erum að undirbúa sig fyrir keppni á EM í sumar en mótið hefst þann 11. júní.

Benzema er að spila sinn fyrsta landsleik frá árinu 2015 en hann verður í hópnum á EM í sumar.

Benzema fékk tækifæri á vítapunktinum á 27. mínútu fyrri hálfleiks en mistókst að koma boltanum í netið.

Danny Ward er í marki Wales og gerði hann virkilega vel með því að verja annars fína spyrnu Benzema.

Frakkland er þó komið yfir en Kylian Mbappe skoraði fyrsta mark leiksins á 35. mínútu.

Hér má sjá spyrnu Benzema.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner