Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 02. júní 2021 17:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Southgate: Misheppnað mót ef við komumst ekki í undanúrslit
Mynd: Getty Images
Gareth Southgate, landsliðsþjálfari Englands, segir að það megi líta á það sem misheppnað mót hjá enska liðinu ef það nær ekki að komast í undanúrslit á EM í sumar.

Enska liðið komst í undanúrslit á HM 2018. Southgate var spurður hvort að það verði litið á mótið sem misheppnað ef England kemst ekki í undanúrslit hið minnsta.

„Já, það verður að öllum líkindum þannig," sagði Southgate.

„Mér finnst það raunhæfar væntingar og við verðum að lifa með því. Erum við klárir í að vinna keppnina? Við höfum komist í tvígang í undanúrslit svo næsta skrefið er að fara lengra."

England komst einnig í undanúrslit Þjóðadeildarinnar árið 2019.

„Við vitum að það er spenna í kringum liðið og það er frábært, okkar gengi skiptir fólk máli," sagði landsliðsþjálfarinn.
Athugasemdir
banner
banner
banner