Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 02. júní 2021 21:30
Victor Pálsson
Southgate: Vitum meira á næstu 24 til 48 klukkutímum
Mynd: Getty Images
Trent Alexander-Arnold fór meiddur af velli hjá Englandi í kvöld í 1-0 sigri á Austurríki í æfingaleik.

Alexander-Arnold var í byrjunarliði Englands í kvöld en fór af velli þegar örfáar mínútur voru eftir af leiknum.

Óttast er að Alexander-Arnold missi af EM alls staðar í sumar en mótið hefst 11. júní.

Gareth Southgate, landsliðsþjálfari Englands, ræddi við blaðamenn eftir leik og þá um meiðsli bakvarðarins.

„Ég held að þetta sé lærið en læknateymið er að skoða hann," sagði Southgate.

„Við þurfum að bíða og sjá. Það er ekk gott að sjá hann labba af velli eins og hann gerði. Við munum vita meira á næstu 24 til 48 klukkutímum."
Athugasemdir
banner
banner
banner