Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 02. júní 2021 06:00
Brynjar Ingi Erluson
West Ham og Southampton berjast um leikmann Barcelona
Junior Firpo er á leið til Englands
Junior Firpo er á leið til Englands
Mynd: Getty Images
Junior Firpo, leikmaður Barcelona á Spáni, er á leið í ensku úrvalsdeildina en spænski vefmiðillinn Sport greinir frá þessu.

Firpo er 24 ára gamall vinstri bakvörður. Hann kom til Barcelona frá Real Betis fyrir tveimur árum en hefur ekki tekist að finna sig á Nou Camp.

Hann spilaði 7 deildarleiki fyrir Barcelona á þessari leiktíð þar sem hann skoraði eitt mark og lagði upp eitt.

Samkvæmt Sport er West Ham og Southampton nálægt því að ná samkomulagi við Barcelona um kaupverð á Firpo en leikmaðurinn á eftir að gera upp við sig hvað hann vill gera.

Verðmiðinn er 16 milljónir evra en það þykir líklegast að hann velji West Ham og spili með liðinu í Evrópudeildinni á næstu leiktíð.
Athugasemdir
banner
banner
banner