Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 02. júní 2022 10:12
Elvar Geir Magnússon
Ben Mee yfirgefur Burnley eftir ellefu ár
Mynd: EPA
Varnarmaðurinn Ben Mee yfirgefur Burnley eftir ellefu ár hjá félaginu en liðið féll úr ensku úrvalsdeildinni á liðnu tímabili.

Mee var fyrirliði Burnley en fékk ekki tilboð um nýjan samning fyrr en í lok tímabilsins.

Nokkur ensk úrvaldsdeildarfélög hafa sýnt áhuga á hinum reynslumikla Mee en hann missti af þrettán síðustu leikjum tímabilsins eftir að hafa fótbrotnað í mars.

Eftir að Burnley féll í lokaumferðinni var Mee lengi úti á vellinum og þakkaði stuðningsmönnum fyrir.

Hann er 32 ára og hefur spilað meira en 340 leiki fyrir Burnley. Það er áfall fyrir félagið að missa Mee en félagi hans í miðverðinum, James Tarkowski, er einnig á förum á frjálsri sölu.
Athugasemdir
banner
banner