fim 02. júní 2022 17:16
Elvar Geir Magnússon
Byrjunarlið Íslands gegn Ísrael: Hákon og Arnór byrja
Arnór Sigurðsson.
Arnór Sigurðsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hákon Arnar leikur sinn fyrsta A-landsleik.
Hákon Arnar leikur sinn fyrsta A-landsleik.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Íslenska karlalandsliðið mætir Ísrael í kvöld í fyrsta leik liðsins í Þjóðadeild UEFA. Leikurinn hefst kl. 18:45 á Sammy Ofer leikvangnum í Haífa.

Smelltu hér til að fara í beina textalýsingu frá leiknum



Búið er að tilkynna byrjunarlið Íslands en það er nánast eins og líklegt byrjunarlið sem Fótbolti.net birti fyrr í vikunni. Eina breytingin er sú að Arnór Sigurðsson er í byrjunarliðinu en ekki Albert Guðmundsson.

Birkir Bjarnason er með fyrirliðabandið og spilar sinn 108. landsleik og Hörður Björgvin Magnússon er einnig meðal byrjunarliðsmanna. Á miðsvæðinu er hinn 19 ára gamli Hákon Arnar Haraldsson, leikmaður FC Kaupmannahöfn, og spilar hann sinn fyrsta A-landsleik.

Auk þessara liða er Albanía í riðlinum en sigurliðið mun komast upp í A-deild Þjóðadeildarinnar.
Athugasemdir
banner
banner
banner