Úkraínska landsliðið vann 3-1 sigur gegn Skotlandi í umspili fyrir HM og mun á sunnudag mæta Wales í hreinum úrslitaleik um sæti á HM í Katar.
Landsliðsmenn Úkraínu gengu inn á völlinn í gær með þjóðfána á öxlunum.
Eins og allir vita hafa síðustu mánuðir verið gríðarlega erfiðir fyrir Úkraínu eftir að Rússar brutu út stríð í landinu. Sigurinn í gær gaf Úkraínumönnum sjaldgæfa stund til að gleðjast.
Það voru gríðarlegar tilfinningar í loftinu á Hampden í gær eins og meðfylgjandi myndir sýna.
Athugasemdir