Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 02. júní 2022 13:30
Ívan Guðjón Baldursson
Newcastle vill njósnara Man City sem yfirmann unglingastarfsins
Mynd: Getty Images

Newcastle er í viðræðum við Manchester City um að fá njósnarann Samuel Fagbemi yfir til sín. Fagbemi yrði ráðinn sem yfirmaður unglingastarfsins hjá Newcastle.


Fagbemi hefur öðlast orðspor sem einn af bestu njósnurum ensku úrvalsdeildarinnar og reyndi Arsenal að fá hann yfir til sín með Mikel Arteta í desember 2019.

Nýir eigendur Newcastle ætla að leggja mikinn pening í innviði félagsins og er langtímamarkmiðið að berjast við stærstu félög Englands á öllum sviðum.

Þeir eru einnig búnir að ráða Dan Ashworth sem yfirmann íþróttamála og er stefna félagsins að koma akademíunni í heimsklassa.


Athugasemdir
banner
banner
banner