Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 02. júlí 2018 14:30
Magnús Már Einarsson
Peter Schmeichel með hjartnæma kveðju til Dana
Peter Schmeichel og Kasper Schmeichel.
Peter Schmeichel og Kasper Schmeichel.
Mynd: Getty Images
Kasper Schmeichel var maður leiksins þegar Króatía og Danmörk áttust við í 16-liða úrslitum á HM í gær. Kasper varði þrjár vítaspyrnur en það dugði ekki til því Króatar fóru áfram eftir vítaspyrnukeppni.

Peter Schmeichel, faðir Kasper, var mikið í mynd á meðan á leik stóð og hann lifði sig vel inn í leikinn.
Peter vann ófáa titla með Manchester United á sínum tíma auk þess sem hann vann EM 1992 með danska landsliðinu.

Peter setti frábæra mynd á Twitter í dag þar sem hann er ásamt Kasper á yngri árum.

„Orðlaus. Gæti ekki verið stoltari af landinu mínum, syni mínum, liðsfélögum hans, starfsfólkinu og okkar stórkostlega þjálfara Age Hareide. Þegar tárin hafa þornað þá áttum við okkur á því hversu vel við stóðum okkur," sagði Peter en færslan er hér að neðan.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner