Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mán 02. júlí 2018 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Ronaldo verður í leikbanni gegn Ítalíu
Mynd: Getty Images
Óljóst er hvort Cristiano Ronaldo ætli að leggja landsliðsskóna á hilluna eða ekki, en ljóst er að hann keppir ekki næsta keppnisleik portúgalska landsliðsins.

Ronaldo er nefnilega í leikbanni í næsta keppnisleik Portúgala eftir að hann fékk tvö gul spjöld á heimsmeistaramótinu.

Portúgal mætir Ítalíu í Þjóðadeildinni í haust. Liðin munu eigast við í Lisbon þann 10. september.

Pólverjar eru þriðja liðið í riðlinum en þeir duttu úr riðlakeppni heimsmeistaramótsins eftir tapleiki gegn Senegal og Kólumbíu í fyrstu tveimur umferðunum.

Portúgal datt út gegn Úrúgvæ í 16-liða úrslitum í gær og verður áhugavert að sjá hvernig Evrópumeisturunum mun ganga í spennandi Þjóðardeildarriðli.
Athugasemdir
banner
banner