Markvörðurinn Kasper Schmeichel var besti maður vallarins þegar Danmörk tapaði gegn Króatíu í 16-liða úrslitum Heimsmeistaramótsins í Rússlandi í gærkvöld.
Gera má ráð fyrir því að flestir séu sammála þeirri staðhæfingu Sky Sports. Kasper varði vítaspyrnu í seinni hálfleik framlengingarinnar og varði hann einnig tvær vítaspyrnur í vítaspyrnukeppninni sjálfri. Schmeichel var heilt yfir mjög flottur í leiknum.

Hér að neðan er einkunnagjöf Sky Sports í heild sinni.
Króatía: Subasic (7), Vrsaljko (6), Lovren (6), Vida (7), Strinic (6), Rakitic (7), Brozovic (6), Rebic (6), Modric (7), Perisic (6), Mandzukic (7). Varamenn: Kovacic (6), Pivaric (6), Kramaric (6), Badelj (6).
Danmörk: Schmeichel (8), Knudsen (6), Kjaer (6), Mathias Jorgensen (7), Dalsgaard (6), Christensen (6), Delaney (7), Eriksen (6), Poulsen (7), Cornelius (5), Braithwaite (6). Varamenn: Schone (6), N Jorgensen (6), Krohn-Dehli (6), Sisto (6).
Maður leiksins: Kasper Schmeichel
Athugasemdir