Gylfi Þór Sigurðsson fær sér kaffi á Bahamaeyjum. Frí áður en æfingar hjá Everton hefjast að nýju. Alexandra Helga, kærasta Gylfa, birti þessa mynd á Instagram.
Íslensku landsliðsmennirnir fóru í allar áttir eftir að þátttöku liðsins á HM í Rússlandi lauk.
Hluti hópsins var ekki lengi að flýja rigningarveðrið á Íslandi og halda til Miami. Aron Einar Gunnarsson fyrirliði, Instagram stjarnan Rúrik Gíslason, Sverrir Ingi Ingason, Alfreð Finnbogason og Jóhann Berg Guðmundsson skelltu sér til Bandaríkjanna.
Aron birti mynd á Instagram í dag þar sem landsliðsmennirnir eru með hinum fjölhæfa leikara Jamie Foxx.
Myndina má sjá hér fyrir neðan.

Stærsta stjarna íslenska liðsins, Gylfi Þór Sigurðsson, fór með kærustu sinni til Bahama.
Einhverjir leikmenn létu íslenska veðrið ekki á sig fá. Birkir Bjarnason spilaði golf með landsliðsnefndarmanninum Magnúsi Gylfasyni á Selfossi í gær og Emil Hallfreðsson hefur verið við æfingar í Kaplakrika auk þess að heimsækja HM stofuna á RÚV.
Hörður Björgvin Magnússon er einnig enn á landinu og Birkir Már Sævarsson spilaði með Val í gær þegar liðið vann 2-0 útisigur gegn Keflavík.
Athugasemdir