Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 02. júlí 2019 13:55
Magnús Már Einarsson
Arnautovic óskar eftir sölu frá West Ham
Kominn með nóg hjá West Ham.
Kominn með nóg hjá West Ham.
Mynd: Getty Images
Marko Arnautovic hefur óskað eftir sölu frá West Ham en Sky Sports greinir frá þessu í dag.

Talið er að félag í Kína vilji kaupa framherjann frá Austurríki og hann vill sjálfur fara frá West Ham.

Í janúar vildu kínversku félögin Shanghai SIPG og Guangzhou Evergrande fá Arnautovic en West Ham hafnaði 35 milljóna punda tilboði í leikmanninn þá.

Arnautovic gerði í kjölfarið nýjan samning upp á 100 þúsund pund í laun á viku en nú vill hann hins vegar fara.

Athugasemdir
banner
banner