Barcelona hefur hafnað 70 milljóna evra tilboði frá Bayern München í franska sóknarleikmanninn Ousmane Dembele. Spænska blaðið Diario Sport greinir frá þessu.
Sagt er að Börsungar séu tilbúnir að skoða málin ef tilboð upp á 95 milljónir evra berst.
Dembele er 22 ára en meiðslavandræði hafa sett strik í reikninginn á ferli hans hjá Barcelona. Hann skoraði 14 mörk á síðasta tímabili en náði aðeins að byrja 20 leiki í La Liga vegna emiðsla.

Bæjarar vilja bæta við leikmönnum framarlega á völlinn en þeir hafa reynt að fá Leroy Sane frá Manchester City.
Barcelona vill fá Neymar aftur til félagsins frá PSG og gæti þá þurft að selja menn til að fjármagna þá endurkomu.
Athugasemdir