Sóknarmaðurinn Sandro Ramirez er á förum frá Everton en hann er í viðræðum við Real Valladolid á Spáni.
Sandro kom til Everton frá Malaga á 5,2 milljónir punda fyrir tveimur árum en hefur ekki náð að festa sig í sessi á Englandi.
Sandro kom til Everton frá Malaga á 5,2 milljónir punda fyrir tveimur árum en hefur ekki náð að festa sig í sessi á Englandi.
Sandro hefur síðan þá leikið með bæði Sevilla og Real Sociedad á láni.
Real Valladolid er nú að kaupa Sandro og þessi 23 ára gamli leikmaður mun því kveðja Everton með einungis átta leiki að baki í ensku úrvalsdeildinni.
Athugasemdir