Bandaríska knattspyrnukonan Alex Morgan bauð upp á skemmtilegt fagn er hún skoraði annað mark liðsins gegn Englendingum.
Christen Press kom bandaríska liðinu yfir í leiknum en hún byrjaði í stað Megan Rapinoe, sem hafði fyrir leikinn í kvöld gert fimm mörk.
Ellen White skoraði svo sjötta mark sitt á mótinu er hún jafnaði fyrir enska landsliðið áður en Alex Morgan kom Bandaríkjunum yfir aftur.
Síðari hálfleikur var að hefjast en staðan er enn 2-1. Hægt er að sjá skemmtilegt fagn hér fyrir neðan en Morgan þykist drekka te og gerir þar grín að Englendingum sem er hálfgerður þjóðardrykkur þeirra.
Alex Morgan trolling England by sipping tea 😂😭😂 pic.twitter.com/nogf0UqLk5
— Footy Humour (@FootyHumour) July 2, 2019
Athugasemdir