Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 02. júlí 2019 18:00
Elvar Geir Magnússon
Snodgrass framlengir
Robert Snodgrass.
Robert Snodgrass.
Mynd: Getty Images
Skoski landsliðsmaðurinn Robert Snodgrass segir að „eitthvað sérstakt" sé að gerast hjá West Ham en hann hefur framlengt samningi sínum við félagið til 2021 með möguleika á ári til viðbótar.

„Stundum færðu tækifæri til að spila fyrir félag sem er sérstakt og er að fara í gegnum sérstakan tíma. Ég tel núna að það sé West Ham," segir hinn 31 árs Snodgrass.

Snodgrass lék 38 leiki á síðasta tímabili.

Meðal leikmanna sem West Ham hefur fengið í sumar er spænski framherjinn Pablo Fornals, þessi 23 ára leikmaður kom frá Villarreal fyrir 24 milljónir punda.

Þá hefur Manuel Pellegrini fengið til sín markverðina David Martin og Roberto en í hina áttina fara Andy Carroll, Adrian og Samir Nasri sem félagið hefur losað.
Athugasemdir
banner
banner
banner