Portúgalski þjálfarinn Nuno Espirito Santo er að taka við Al Ittihad í Sádi-Arabíu.
Nuno var ráðinn til Tottenham síðasta sumar en rekinn fjórum mánuðum síðar eftir slaka byrjun á tímabilinu.
Hann þjálfaði áður Rio Ave, Wolves, Valencia og Porto við góðan orðstír en nú heldur hann út fyrir Evrópu.
Fjölmiðlar í Sádi-Arabíu greina nú frá því að Nuno hafi komist að samkomulagi um að taka við liði Al Ittihad.
Al Ittihad er þriðja sigursælasta liðið í landinu með átta meistaratitla en liðið hafnaði í öðru sæti á síðasta tímabili sem var að klárast.
Athugasemdir