Andri Lucas Guðjohnsen er í fyrsta sinn í A-landsliðinu á sínum ferli. Andri Lucas er nítján ára sóknarmaður og er hann sonur Eiðs Smára Guðjohnsen sem er einn allra besti fótboltamaður í sögu Íslands. Eiður er í dag aðstoðarþjálfari landsliðsins.
Andri Lucas byrjar á bekknum gegn Rúmeníu, leikurinn hefst klukkan 18:45.
Andri Lucas byrjar á bekknum gegn Rúmeníu, leikurinn hefst klukkan 18:45.
Lestu um leikinn: Ísland 0 - 2 Rúmenía
Andri Lucas klæðist treyju númer 22 en Eiður var lengi á sínum ferli með það númer á bakinu.
Hjá Chelsea var Eiður Smári númer 22 og undir lok landsliðsferilsins með Íslandi.
Athugasemdir