Ísland gerði tilkall til vítaspyrnu í fyrri hálfleiknum gegn Rúmeníu í kvöld. Andri Fannar Baldursson átti þá skot sem fór í leikmann Rúmeníu inn á vítateignum.
„Andri Fannar átti skot í varnarmann rúmenska liðsins skömmu áður og voru nokkur köll um vítaspyrnu, boltinn virtist fara hönd Rúmenans inn á þeirra vítateig. Viðar Örn stóð upp við varnarmanninn og bað strax um víti," stendur í textalýsingu frá leiknum á 29. mínútu.

Lestu um leikinn: Ísland 0 - 2 Rúmenía
Arnar Þór Viðarsson sat fyrir svörum á fréttamannafundi eftir leikinn og var spurður út í þetta atvik.
Fannst þér þetta vera víti og hvað segja strákarnir?
„Ég er ekki búinn að sjá þetta aftur og ég heyrði ekkert strákana tala um það inn í klefa. Við þurfum að kíkja á það. Við hefðum getað spurt VAR að því en þeir voru í fríi," sagði Arnar.
Eins og kom fram fyrir leik átti að vera VAR á leiknum en það var bilun í kerfinu og því engin myndbandsdómgæsla.
Þá hefur einhver umræða verið um seinna mark Rúmena og hvort markaskorari Rúmena hafi verið rangstæður.
Athugasemdir