Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 02. september 2021 19:22
Brynjar Ingi Erluson
Ronaldo fær sjöuna - Cavani verður númer 21
Cristiano Ronaldo verður í treyju númer 7
Cristiano Ronaldo verður í treyju númer 7
Mynd: Heimasíða Man Utd
Enska úrvalsdeildarfélagið Manchester United staðfesti nú rétt í þessu að Cristiano Ronaldo mun leika í treyju númer 7.

Úrúgvæski framherjinn Edinson Cavani spilaði í treyju númer 7 á síðustu leiktíð en hann ákvað að gefa eftir treyjuna og leyfa Ronaldo að fá númerið.

Ronaldo spilaði í sjöunni á tíma hans hjá United áður en hann fór til Real Madrid árið 2009. Nú er staðfest að hann spilar í sjöunni á komandi leiktíð.

Cavani tekur treyjunúmer Daniel James sem fór til Leeds á dögunum. Þessi treyja kemur sér vel fyrir Cavani sem er einmitt með sama treyjunúmer hjá Úrúgvæ.

„Ég var ekki viss hvort það væri möguleiki á að fá sjöuna aftur en ég vil þakka Edi innilega fyrir þessa velvild," sagði Ronaldo við heimasíðu United.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner