Riyad Mahrez, leikmaður Manchester City, og Said Benrahma, leikmaður West Ham, hafa báðir skipt aftur í sinn náttúrulega hárlit að beiðni landsliðsþjálfara Alsír.
Þeir skiptu báðir um hárlit í sumar, að fordæmi enska landsliðsmannsins Phil Foden.
En þeir ákváðu báðir að skipta aftur yfir í dökkan hárlit fyrir landsliðsverkefni með Alsír.
Djamel Belmadi, landsliðsþjálfari Alsír, er strangur og samkvæmt fjölmiðlinum Dzair Daily skipaði hann leikmönnunum að lita hár sitt aftur. Belmadi, sem lék með Paris Saint -Germain, Marseille og Manchester City á leikmannaferli sínum, er sagður vilja að leikmenn hans „séu með virðulegan stíl,“ og „útlit sem endurspeglar hefðir og venjur í alsírsku samfélagsi.“
Alsír spilar í dag við Djibouti í undankeppni HM í Afríku.
🙅🏼♂️🇩🇿 Algeria manager Djamel Belmadi requested that Riyad Mahrez and Said Benrahma both remove their blonde hair as part of his discipline for the Algerian national team. pic.twitter.com/035NzWjT8G
— Algerian Football (@AlgerianFooty) August 30, 2021
Athugasemdir