Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fim 02. september 2021 08:00
Brynjar Ingi Erluson
Stefán Teitur í liði umferðarinnar í dönsku úrvalsdeildinni
Stefán Teitur Þórðarson
Stefán Teitur Þórðarson
Mynd: Getty Images
Stefán Teitur Þórðarson, leikmaður Silkeborg í Danmörku, er í liði umferðarinnar í dönsku úrvalsdeildinni en það er TV3Sport sem velur liðið.

Skagamaðurinn lagði upp tvö mörk í 2-1 sigri Silkeborg á Randers um helgina.

Þetta var fimmti leikur hans á tímabilinu með Silkeborg en hann átti þátt í því að koma liðinu úr B-deildinni á síðustu leiktíð.

Hann er verðlaunaður fyrir frammistöðuna gegn Randers og er því í liði umferðarinnar hjá TV3Sport.

Silkeborg er í 6. sæti með 10 stig þegar sjö umferðir eru búnar af mótinu.
Athugasemdir
banner
banner