Það eru þrír leikmenn úr röðum Íslands einu gulu spjaldi frá því að fara í leikbann í undankeppni HM, fyrir leik kvöldsins gegn Rúmeníu á Laugardalsvelli.
Það eru varnarmennirnir Ari Freyr Skúlason og Kári Árnason, og framherjinn Albert Guðmundsson.
Þetta kemur fram hjá UEFA.
Það eru góðar líkur á því að þessir þrír verði í byrjunarliði Íslands. Kári er reyndar tæpur fyrir leikinn og spurning hvort hann sé nægilega heill til að byrja.
Það verður flautað til leiks á Laugardalsvelli klukkan 18:45 og mun Fótbolti.net fjalla vel um leikinn.
Athugasemdir