Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
banner
   fim 02. september 2021 10:03
Elvar Geir Magnússon
Xhaka hafnaði bólusetningu
Mynd: Getty Images
Granit Xhaka, leikmaður Arsenal á Englandi, er með Covid-19 og verður því ekki með Sviss í næstu leikjum. Frá þessu var greint í gær.

Svissneska knattspyrnusambandið fékk fyrirspurn um það hvort Xhaka væri bólusettur og opinberaði að Xhaka hefði hafnað því að fá bólusetningu við Covid-19.

Aðrir í svissneska hópnum eru bólusettir, búnir að fá einn skammt eða tvo.

Bólusetningar eru taldar minnka líkurnar á smitum og draga úr alvarlegum veikindum vegna Covid-19.

Samkvæmt könnun sem gerð var í ensku deildakeppninni er þriðjungur leikmanna ekki með plön um að fá bólusetningu.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner