Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 02. september 2022 20:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Cavani: Vil komast út á völl eins fljótt og hægt er
Mynd: EPA

Edinson Cavani gekk til liðs við Valencia á Spáni fyrir lok félagsskiptagluggans í gær.


Cavani hafði verið án félags síðan hann yfirgaf Manchester United í byrjun sumars. Hann er nú mættur til Spánar.

Hann er spenntur að byrja spila fyrir félagið.

„Ég vil komast út á völl eins fljótt og hægt er. Ég mun ávallt gera mitt besta þar sem ég vil sanna mig fyrir þeim þar sem þeir trúa mikið á mig," sagði Cavani.

Valencia tekur á móti Getafe á sunnudaginn. Liðið er með þrjú stig eftir þrjá leiki.


Athugasemdir
banner
banner
banner