FH vann endurkomusigur gegn KA í undanúrslitum Mjólkurbikars karla í gærkvöldi.
Lestu um leikinn: FH 2 - 1 KA
Sigurmarkið gerði Davíð Snær Jóhannsson, sem átti virkilega flotta innkomu eftir að hafa komið inn á sem varamaður.
„SÁ HITTI BOLTANN!!!!! VARAMAÐURINN DAVÍÐ SNÆR AÐ FARA LANGT MEÐ AÐ SKJÓTA FH Í ÚRSLITALEIKINN!" skrifaði Elvar Geir Magnússon þegar Davíð Snær skoraði sigurmarkið í uppbótartímanum eftir leik.
„Lét vaða fyrir utan teig. Jajalo var í boltanum en þetta var alveg út við stöng!"
Gunnar Birgisson lýsti leiknum á RÚV en lýsing hans af markinu hefur vakið mikla athygli. Gunnar tók góðan trylling þegar markið kom.
Hægt er að sjá myndband af markinu í lýsingu Gunnars hér fyrir neðan.
MARK - FH er komið yfir og allt stefnir í að FH fari í úrslitaleikinn á móti Víking - Davíð Snær Jóhannsson með svakalegt skot og mark og leiktíminn er að renna út pic.twitter.com/nNQriYiDV1
— RÚV Íþróttir (@ruvithrottir) September 1, 2022
Bekkurinn hjá FH fagnar sigrinum pic.twitter.com/SwoUh4Iky6
— RÚV Íþróttir (@ruvithrottir) September 1, 2022
Davíð, hér er hringitónninn þinn #fotboltinet https://t.co/Pkle1WtzQg
— Jóhann Jökull (@jrhusid) September 1, 2022
Athugasemdir