Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 02. september 2022 12:43
Elvar Geir Magnússon
Kemur í ljós á morgun hvort Ramsdale og Ödegaard geta spilað gegn Man Utd
Martin Ödegaard, fyrirliði Arsenal.
Martin Ödegaard, fyrirliði Arsenal.
Mynd: EPA
Arsenal er með fullt hús stiga í ensku úrvalsdeildinni en á sunnudag mun liðið heimsækja Manchester United. Mikel Arteta, stjóri Arsenal, segir að markvörðurinn Aaron Ramsdale og fyrirliðinn Martin Ödegaard séu tæpir fyrir leikinn.

Þá er ólíklegt að Oleksandr Zinchenko komi við sögu en hann gat ekki æft í morgun. Hann hefur misst af síðustu tveimur leikjum.

Ramsdale meiddist í 2-1 sigrinum gegn Aston Villa á miðvikudag en kláraði leikinn. Ödegaard fékk slæmt högg í sama leik og var tekinn af velli seint í leiknum eftir samstuð við John McGinn.

„Það er verið að skoða meiðsli Ramsdale og Ödegaard. Það kemur í ljós með þá á morgun, vonandi geta þeir þá æft með liðinu. Því miður er Alex (Zinchenko) ekki orðinn leikfær," sagði Arteta þegar hann ræddi um meiðslastöðu síns liðsins.

„Við erum að telja í mánuðum varðandi meiðsli Mo (Elneny). Varðandi Thomas (Partey) eru þetta vonandi vikur og jafnvel styttri tími en það. Það þarf að reyna að stýra honum. Hann er mjög svekktur yfir því hversu mikið hann hefur verið á meiðslalistanum."
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Man City 32 22 7 3 76 32 +44 73
2 Arsenal 32 22 5 5 75 26 +49 71
3 Liverpool 32 21 8 3 72 31 +41 71
4 Aston Villa 33 19 6 8 68 49 +19 63
5 Tottenham 32 18 6 8 65 49 +16 60
6 Newcastle 32 15 5 12 69 52 +17 50
7 Man Utd 32 15 5 12 47 48 -1 50
8 West Ham 33 13 9 11 52 58 -6 48
9 Chelsea 31 13 8 10 61 52 +9 47
10 Brighton 32 11 11 10 52 50 +2 44
11 Wolves 32 12 7 13 46 51 -5 43
12 Fulham 33 12 6 15 49 51 -2 42
13 Bournemouth 32 11 9 12 47 57 -10 42
14 Crystal Palace 32 8 9 15 37 54 -17 33
15 Brentford 33 8 8 17 47 58 -11 32
16 Everton 32 9 8 15 32 48 -16 27
17 Nott. Forest 33 7 9 17 42 58 -16 26
18 Luton 33 6 7 20 46 70 -24 25
19 Burnley 33 4 8 21 33 68 -35 20
20 Sheffield Utd 32 3 7 22 30 84 -54 16
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner