Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fös 02. september 2022 10:30
Ívan Guðjón Baldursson
Man Utd borgar tvær milljónir punda fyrir Dubravka
Mynd: EPA

Fabrizio Romano greinir frá því að Manchester United hafi þurft að greiða Newcastle United tvær milljónir punda til að fá Martin Dubravka á láni. 


Rauðu djöflarnir geta keypt markvörðinn fyrir 6 milljónir í viðbót en kaupmöguleikinn gæti orðið af kaupskyldu ef ákveðnum skilyrðum verður mætt.

Ef David de Gea meiðist og Dubravka spilar ákveðið magn úrvalsdeildarleikja þá virkjast kaupákvæðið sjálfkrafa og mun Man Utd festa kaup á Slóvakanum.

Dubravka er 34 ára og með þrjú ár eftir af samningi sínum við Newcastle. Hann á 130 leiki að baki á fjóru og hálfu ári hjá félaginu.


Athugasemdir
banner
banner