Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 02. september 2022 21:20
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Naumur sigur í fyrsta leik nýs landsliðsþjálfara Hollands
Vivianne Miedema
Vivianne Miedema
Mynd: EPA

Íslenska kvennalandsliðið mætir því Hollenska á útivelli í lokaleik undankeppni HM. Ísland nægir jafntefli til að komast beint á HM í Ástralíu og Nýja Sjálandi á næsta ári.


Hollendingar voru svekktir með árangurinn á EM og þjálfarinn var látinn fara. Andries Jonker tók við liðinu og hann stýrði því í fyrsta sinn í kvöld.

Liðið tók á móti Skotlandi í æfingaleik. Vivianne Miedema kom Hollandi yfir eftir 10 mínútna leik. Claire Emslie jafnaði hins vegar metin tveimur mínútum síðar.

Það var hins vegar Fenna Kalma sem tryggði Hollandi sigur með marki á 89. mínútu.


Athugasemdir
banner