Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 02. september 2022 14:57
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Duglegur að skjóta á Neville en kemur núna besta vini sínum til varnar
Jamie Carragher.
Jamie Carragher.
Mynd: Getty Images
Jamie Carragher, fyrrum varnarmaður Liverpool, skrifar í dag áhugaverðan pistil fyrir Telegraph.

Í pistlinum kemur hann vini sínum Steven Gerrard til varnar, en Gerrard hefur gengið frekar illa frá því hann tók við stjórn Aston Villa á síðasta ári.

Það er farið að hitna undir Gerrard, en Carragher segir að Aston Villa verði að gefa honum tíma. Carragher og Gerrard spiluðu saman í Liverpool á sínum tíma.

Carragher var duglegur að skjóta á Gary Neville, félaga sinn á Sky Sports, fyrir afsakanir hans í garð Ole Gunnar Solskjær þegar hann stýrði Manchester United. Neville var duglegur að koma Solskjær til varnar, en þeir voru liðsfélagar í United á sínum tíma.

Núna er því athyglisvert að sjá þennan pistil hjá Carragher en hægt er að skoða hann með því að smella á tístið hér fyrir neðan.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner