Karim Benzema, framherji Real Madrid, er viss um að Kylian Mbappe gangi til liðs við félagið á næstunni.
Mbappe, sem er 22 ára gamall, verður samningslaus næsta sumar en Real Madrid reyndi að fá hann undir lok gluggans frá Paris Saint-Germain en án árangurs.
Félagið var tilbúið að greiða allt að 200 milljónir evra fyrir hann en PSG hafnaði fyrsta tilboði og hætti svo að svara í símann.
PSG er enn vongott um að framlengja við Mbappe en Benzema er þó viss um að hann eigi eftir að spila fyrir Madrídarliðið.
„Kylian Mbappe mun ganga til liðs við Real Madrid einn daginn. Ég er viss um það. Ég veit ekki hvenær það verður en hann mun koma og er þetta aðeins tímaspursmál. Hann sagði það sjálfur," sagði Benzema við L'Equipe.
Athugasemdir