Man Utd og Everton eigast við klukkan 11:30 í 7. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í dag. Leikurinn er á Old Trafford og er Cristiano Ronaldo á bekknum.
Portúgalski sóknarmaðurinn hefur farið vel af stað með United síðan hann kom frá Juventus en þarf að sætta sig við að byrja á tréverkinu í dag.
Ole Gunnar Solskjær, stjóri United, gerir fimm breytingar frá 2-1 sigrinum á Villarreal. Paul Pogba, Jadon Sancho og Alex Telles koma einnig á bekkinn á meðan Diogo Dalot er ekki í hóp. Luke Shaw, Edinson Cavani, Anthony Martial Aaron Wan-Bissaka og Fred koma allir inn.
Rafa Benitez gerir aðeins eina breytingu. Anthony Gordon kemur inn fyrir Alex Iwobi.
Man Utd: de Gea, Shaw, Lindelöf, Wan-Bissaka, Varane, Bruno Fernandes(c), Martial, McTominay, Fred, Greenwood, Cavani
Everton: Pickford, Godfrey, Digne, Mina, Keane, Allan, Doucouré, Townsend, Gray, Gordon, Rondon.
Athugasemdir