banner
   lau 02. október 2021 06:00
Hafliði Breiðfjörð
FH með mót fyrir 5 manna lið í október
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fimleikafélag Hafnarfjarðar heldur frábært mót þann 22.okt í Skessunni. Engin skilyrði eru fyrir skráningu, bara 5-a-side bolti, bjór, góður matur og gott partý eftir mót.

Eina sem þarf að gera er að safna saman góðum eða misgóðum mönnum og senda liðið inn á [email protected].

Eins og áður segir verður allt flæðandi í þeim græna og góða og geggjaður matur frá Kjötkompaní. Svo er aldrei að vita hvort það verði ekki gott pub quiz að móti loknu.

Hvetjum því alla til að safna saman í lið, því 5000kr á mann fyrir alla þessa veislu er algjör gjöf.
Athugasemdir
banner
banner
banner