Framherjinn Inaki Williams setti magnað met í gær þegar hann spilaði með Athletic Bilbao gegn Deportivo Alaves í spænsku úrvalsdeildinni.
Hann hefur núna spilað 203 leiki í röð í La Liga - án þess að missa úr leik.
Williams er aðeins einn af tveimur leikmönnum sem hefur spilað í yfir 200 leikjum í röð í efstu deild Spánar. Hinn er Juan Larranaga, fyrrum varnarmaður Real Sociedad, sem spilaði 202 leiki í röð.
Williams er núna einn á toppnum eftir að hafa spilað í leiknum í gær. Þetta er magnaður árangur, en þessi leikjahrina hans hófst fyrir fimm árum síðan.
Það verður gaman að sjá hversu lengi hún mun svo endast, hversu marga leiki í viðbót hann mun taka án þess að missa af einum einasta leik.
Athugasemdir