Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 02. október 2021 22:45
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Koeman: Verðum að vinna næstu þrjá heimaleiki
Mynd: Getty Images
Barcelona tapaði gegn Atletico Madrid í kvöld. Ronald Koeman þjálfari Barcelona var uppí stúku þar sem hann tekur út leikbann.

Koeman talaði við fjölmiðla eftir leik kvöldsins en hann hefur verið undir mikilli pressu þar sem gengi félagsins hefur ekki verið Barcelona til sóma á þessari leiktíð.

Hann segist hafa átt gott samtal við forsetann í gær.

„Við töluðum saman í gærkvöldi og í morgun. Við töluðum um hópinn og við erum á sömu blaðsíðu. Ég veit að úrslit skipta máli. Við verðum að vinna næstu þrjá heimaleiki eftir landsleikjahléið. Ég trúi því að ég geti snúið blaðinu við. Við höfum verið án lykilmanna. Ég hef bara geta gert það besta úr þeim leikmönnum sem við höfum."
Athugasemdir
banner
banner
banner