Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   lau 02. október 2021 20:29
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Valerenga í bikarúrslit - Andrea skoraði en Patrik sá rautt
Ingibjörg (t.v) og Amanda komnar í úrslit í norska bikarnum.
Ingibjörg (t.v) og Amanda komnar í úrslit í norska bikarnum.
Mynd: Guðmundur Svansson
Íslendingar gerðu vel í norska boltanum í dag.

Í Noregi komst kvennalið Valerenga í úrslit bikarsins en liðið sigraði Rosenborg 4-0. Ingibjörg Sigurðardóttir lék allan leikinn fyrir Valerenga en Amanda Andradóttir kom ekkert við sögu.

Í karlaboltanum í Noregi vann Viking gegn Sandefjord en Patrik Sigurður Gunnarsson markvörður Viking fékk að líta rauða spjaldið eftir 20 mínútna leik. Í næst efstu deild í Noregi gerðu Sogndal og Jerv 1-1 jafntefli. Emil Pálsson spilaði 75. mínútur fyrir Sogndal.

Í næst efstu deild skoraði Andrea Thorisdóttir þriðja mark Kalmar í 3-1 sigri gegn Bollstanas.
Athugasemdir
banner