Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 02. nóvember 2020 14:30
Magnús Már Einarsson
Bayern dregur samningstilboð Alaba til baka
Mynd: Getty Images
Bayern Munchen hefur dregið samningstilboð sitt til varnarmannsins David Alaba til baka.

Hinn 28 ára gamli Alaba verður samningslaus næsta sumar og hann hefur verið með tilboð á borðinu frá Bayern.

Sagt er að tilboðið hafi hljóðað upp á nýjan fimm ára samning sem myndi færa Alaba ellefu milljónir evra í árslaun.

Bayern vildi fá svar fyrir mánaðarmót og Herbert Hainer, forseti félagsins, hefur nú staðfest að tilboðið sé ekki lengur á borðinu.

Alaba getur því hafið viðræður við önnur félög strax á nýju ári en hann hefur verið orðaður við Real Madrid, Barcelona og Juventus.
Athugasemdir
banner
banner
banner