Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mán 02. nóvember 2020 21:39
Aksentije Milisic
Ítalía: Barak með tvennu í sigri á Benevento
Tvenna hjá Barak.
Tvenna hjá Barak.
Mynd: Getty Images
Verona 3 - 1 Benevento
1-0 Antonin Barak ('17 )
1-1 Gianluca Lapadula ('56 )
2-1 Antonin Barak ('63 )
3-1 Darko Lazovic ('77 )

Rautt spjald: Gianluca Caprari, Benevento ('73)

Einn leikur var á dagskrá í Seríu A deildinni á Ítalíu í kvöld.

Benevento heimsótti þá Verona og það voru heimamenn sem byrjuðu leikinn betur í kvöld. Antonin Barak kom Verona yfir á 17. mínútu og var staðan 1-0 í hálfleik.

Benevento jafnaði leikinn í byrjun síðar hálfleiks með marki frá Gianluca Lapadula. Barak var hins vegar aftur á ferðinni og koma Verona yfir og í kjölfarið fékk Gianluca Caprari rautt spjald hjá gestunum.

Darko Lazovic gulltrygði sigurinn fyrir Verona sem situr í 7. sæti deildarinnar. Benevento er í fjórtánda.
Athugasemdir
banner
banner