Kári Árnason verður klár í slaginn þegar Ísland mætir Ungverjalandi í umspili um sæti á EM á fimmtudaginn í næstu viku. Vísir greinir frá þessu í dag.
Kári meiddist á ökkla undir lokin í 2-1 sigrinum á Rúmeníu í síðasta mánuði.
Kári meiddist á ökkla undir lokin í 2-1 sigrinum á Rúmeníu í síðasta mánuði.
„Ég er búinn að jafna mig. Þetta var bara eitthvað með liðbönd í ökkla. Ég teipaði þetta og er orðinn fínn, og náði að æfa á fullu í viku með Víkingi þar til að öllu var hætt. Við erum að vinna í öðrum leiðum núna til að geta æft smá fótbolta,“ segir Kári við Vísi.
Fótboltaæfingar eru ekki leyfðar á Íslandi í dag vegna kórónuveirunnar en unnið er að því að finna lausnir fyrir Kára, Hannes Þór Halldórsson og Birkir Már Sævarsson sem eru á Íslandi að undirbúa sig fyrir leikinn í næstu viku.
Athugasemdir