Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
   mán 02. nóvember 2020 12:22
Magnús Már Einarsson
Klopp: Salah fékk högg í vítaspyrnunni
Mohamed Salah
Mohamed Salah
Mynd: Getty Images
Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, gefur lítið fyrir gagnrýni David Moyes, stjóra West Ham, eftir leik liðanna um helgina.

Mohamed Salah fékk vítaspyrnu í fyrri hálfleik eftir baráttu við Arthur Masuaku. Moyes vildi meina að ekki hefði verið um vítaspyrnu að ræða en Klopp segir það ekki rétt.

„Ég ræddi við Mo Salah í gær og hann fékk þrjú alvöru högg á fótinn," sagði Klopp.

„Eitt af þeim höggum var vítaspyrnu atvikið, hvort sem þið trúið því eða ekki. Það var klár snerting. Svo nei, ég skil ekki gagnrýnina."

Sjá einnig:
Moyes ósáttur með vítaspyrnuna: Ótrúlegur dómur
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner