Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mán 02. nóvember 2020 11:30
Magnús Már Einarsson
Mourinho: Ég ætla að skoða vefsíðu Real Madrid
Mynd: Getty Images
„Auðvitað er ég sáttur með Bale, hann verðskuldar þetta," sagði Jose Morrinho, stjóri Tottenham, eftir 2-1 sigurinn á Brighton í gær.

Gareth Bale skoraði sigurmarkið en hann kom til Tottenham frá Real Madrid á láni undir lok félagskiptagluggans.

Bale hefur verið úti í kukldanum hjá Real Madrid en Mourinho skaut á spænska félagið eftir markið í gær.

„Hann veit að okkur þykir vænt um hann og við vitum að hann þykir vænt um okkur. Hann passar fullkomlega inn, hann er mjög rólegur, mjög klár og er með góða tilfinning," sagði Mourinho.

„Þegar ég á fimm mínutur ætla ég á Safari (vafrann) til að skoða vefsíðu Real Madrid og sjá hvað þeir segja um þetta."
Athugasemdir
banner