Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 02. nóvember 2020 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Ótrúlegar lokasekúndur á Spáni: Markvörðurinn skoraði
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Skemmtilegt myndband af lokasekúndunum í utandeildarleik á Spáni hefur fengið athygli á veraldarvefnum.

Myndbandið sýnir frá síðustu sekúndum leiksins, þegar markvörður annars liðsins jafnaði leikinn með skoti utan vítateigs. Jöfnunarmarkið var afar dramatískt og brutust út mikil fagnaðarlæti.

Markvörðurinn var næstum kominn aftur í sitt eigið mark þegar hann sneri sér frá boltanum og horfði í átt að markinu. Hann heyrði hróp, sneri sér við og sá að andstæðingarnir höfðu ákveðið að láta vaða frá miðju - en þá var orðið of seint.

Sjáðu mörkin

Crazy finish in a Regional Spanish Division. GK equalizes, then... from r/soccer


Athugasemdir
banner