Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 02. nóvember 2020 21:00
Aksentije Milisic
„Partey bestu kaup sumarsins"
Mynd: Getty Images
Paul Merson, sparkspekingur og fyrrum leikmaður Arsenal, segir að kaup Arsenal á Thomas Partey frá Atletico Madrid, séu kaup sumarins.

Merson segist vera hissa að Arsenal hafi náð að klófesta leikmanninn en hann gekk til liðs við Arsenal á lokadegi félagsskiptagluggans.

Partey var mjög öflugur á miðjunni hjá Arsenal í gær sem sótti sigur á Old Trafford þar sem Pierre Emerick-Aubameyang gerði eina mark leiksins úr vítaspyrnu.

„Þegar þú talar um kaup sumarsins, þá hlýtur hann að vera þar. Ég trúi ekki að Arsenal hafi náð að kaupa hann," sagði Merson.

„United er með gott lið og eru með Fred, Scott McTominay og Matic. En þeir eru ekki með neinn eins og Partey."

„Manchester City líka. Tími Fernandinho er að verða búinn og Rodri hefur ekki verið nægilega góður. Ég hugsa bara: Vá, eru þið að sjá þetta?"

Þá nefndi Merson það að Mestu Özil gæti spilað fyrir liðið fyrst Partey er mættur á miðjuna.

Athugasemdir
banner
banner
banner